top of page

Húðdropar eru mikilvægur hluti af húðumönnun, sama hver á í hlut. Þeir eru frábær leið til að vinna markvisst gegn sérstökum áhyggjuefnum varðandi húðina. Nærðu húðina með húðdropunum okkar gegn hrukkum. Þeir innihalda húðvæna efnablöndu með B3-, C- og E-vítamínum, alóvera og krafti úr kastaníufræjum og geta hjálpað til við að draga úr fínum línum og hrukkum á aðeins 7 dögum*.

Í klínískum prófunum hefur verið sýnt fram á ótrúlegan bata á húðinni, sem verður mýkri og sléttari og fær aukna útgeislun, bjarma og ljóma á aðeins sjö dögum.**

 

Helstu einkenni og kostir:

  • Án viðbættra parabena.
  • Án viðbættra súlfata.
  • Henta fyrir allar húðgerðir.
  • Hjálpa til við að draga úr fínum línum og hrukkum.*
  • Gera húðina sléttari og mýkri.**
  • Grimmdarlaus vara.

 

Notkunarleiðbeiningar:

Dreifið litlum deplum af húðdropum yfir allt andlitið og nuddið þeim varlega inn í húðina með fingurgómunum. Besti árangurinn næst með því að nota dropana á eftir hreinsimjólk en á undan rakakremi. Henta til notkunar bæði á morgnana og kvöldin.

 

* Klínísk prófun á þátttakendum fór þannig fram að notuð voru Visioscan-mælitæki og ljósmyndagreining (Reverse Photo Engineering) til að mæla hversu óslétt húðin var eftir 0, 7 og 42 daga.

** Prófun á sléttleika, mýkt, bjarma, útgeislun og ljóma húðarinnar hjá þátttakendum fór þannig fram að sérfræðingur í sjónrænu mati gaf einkunn eftir 2, 4 og 7 daga.

Herbalife SKIN húðdropar gegn hrukkum

15.860krPrice
Quantity
bottom of page