Húðin umhverfis augun er sú viðkvæmasta í andlitinu – þú skalt því annast sérstaklega vel um hana með rakagefandi augnkreminu. Það hjálpar til við að draga úr fínum línum og hrukkum umhverfis augun.*
Í klínískum prófunum hefur verið sýnt fram á marktæka aukningu á raka í húðinni í 8 klukkustundir.**
Helstu einkenni og kostir:
- Án viðbættra parabena.
- Án viðbættra súlfata.
- Prófað af húðsjúkdómafræðingi.
- Hentar fyrir allar húðgerðir.
- Grimmdarlaus vara.
Notkunarleiðbeiningar:
Notið baugfingur til að bera kremið með léttri snertingu neðan við augun þar til það hverfur algerlega inn í húðina. Notið á morgnana eða kvöldin sem hluta af daglegri húðumönnun.
* Klínísk prófun á þátttakendum fór þannig fram að notað var Visioscan-mælitæki til að mæla hversu óslétt húðin var eftir 0, 7 og 42 daga.
** Prófað á þátttakendum með því að mæla rakastig í húðinni eftir 8 klukkustundir. Hjá 100% þátttakenda reyndist rakastig húðarinnar vera umtalsvert hærra eftir átta klukkustundir en það var fyrir prófið.