Að vera íþróttamaður er lífsstíll sem krefst kraftmikillar og sveigjanlegrar næringar til að uppfylla daglegar þarfir. Hvort sem þú spilar erfiða fótboltaleiki, stundar einhvers konar íþróttaæfingar eða skreppur í ræktina þarft þú vörur sem hjálpa þér að undirbúa þig, þjálfa þig og jafna þig svo í kjölfarið.
CR7 Drive úr Herbalife24® úrvalinu er íþróttadrykkur með asaíberjabragði sem var þróaður af sérfræðingum í næringarmálum í samvinnu við heimsfræga knattspyrnustjörnu: Cristiano Ronaldo.
CR7 er lausn með kolvetnum og söltum sem staðfest hefur verið að eykur upptöku vatns úr meltingarveginum meðan á líkamsæfingum stendur* og stuðlar að því að viðhalda þreki**.
Helstu einkenni og kostir:
- Inniheldur B12-vítamín og magnesíum.
- Með innan við 100 kkal í skammti.
- Milt asaíberjabragð.
- Án gervisætuefna.
- Eykur upptöku vatns meðan á líkamsæfingum stendur.*
Notkunarleiðbeiningar:
Bætið einum smápakka (27 g) út í 500 ml af vatni, hristið kröftuglega og njótið svo vel. Besti árangurinn næst með því að drekka CR7 Drive meðan á áreynslu stendur.
Allar Herbalife24® vörurnar hafa verið vandlega prófaðar fyrir bönnuðum efnum af óháðum þriðja aðila.
Notið þessa vöru sem hluta af vel samsettu og fjölbreyttu mataræði og heilnæmum og virkum lífsstíl.
* Lausnir með kolvetnum og söltum auka upptöku vatns meðan á líkamsæfingum stendur.
** Lausnir með kolvetnum og söltum stuðla að því að viðhalda þreki meðan á löngum þolæfingum stendur.